Wednesday, May 10, 2006

Bláberjaterta Bjarkar

2 egg, 2dl sykur, 1 tsk. vanilludropar, 1 tsk. lyftiduft, 3 msk. hveiti, 3 msk. kalt vatn, 100 g suðusúkkulaði, 100 g heslinhetur - flögur, 2 1/2 dl döðlur, 3 dl bláber, 1 peli rjómi.
Egg og sykur stífþeytt. Síðan er vökva og þurrefnum blandað varlega saman við. Síðast er niðurksornu súkkulaðinu, hnetuflögunum og smátt skornum döðlunum blandað varlega saman við. Sett í 24-26 cm lausbotna tertuform og bakað við 175°C í rúmlega 1 klukkustund. Botninn má frysta ef vill og þá látinn þiðna í nokkra klukkutíma áður en ber eru sett á. Frosin eða fersk ósykruð bláber eða aðalbláber eru sett á kökuna og látin standa um stund. Síðan er þeyttur rjóminn settur ofan á.

Comments: Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?