Friday, June 30, 2006
Bakaður páskafugl!
Thursday, June 29, 2006
Úr íslenskum garði
Tvær uppskriftir!
Friday, June 16, 2006
Lambakótilettur á marokkóska vísu
Lambakótilettur með kúmín og papriku
[fyrir fjóra]
2 mak. heil kúmínfræ, 1 tsk. sæt paprika, duft, 1/2 tsk. chili, 1 msk. sjávarsalt, 12-16 kótilettur, 40 g brætt smjör.
Hrærið allt kryddið saman í mortéli og myljið aðeins saman. Rétt áður en á að grilla eða steikja kótiletturnar, smyrjið þær með bræddu smjöri og veltið þeim upp úr kryddinu. Grillið eða steikið á pönnu og setjið aðeins inn í heitan ofn til að elda þær í gegn (þarf ekki nema 5-10 mín. í ofni). Berið fram með salati og brauði.
Tómatsalat
400 g kirsuberjatómatar, 1/2 rauðlaukur, fínt saxaður, 150 g fetaostur, 2 msk. ferskt eða þurkkað oreganó, 100 g svartar ólífur.
Dressing: 1 hvítlauksrif, 1 tsk. sjávarsalt, 1 1/2 msk. rauðvínsedik, 100 g kirsuberjatómatar, 6 msk. extara virgin ólífuolía, salt og svartur pipar.
Maukið vel saman hvítlauk og salt. Maukið tómatana í matvinnsluvél: Hrærið svo saman hvítlaukinn, tómatmaukið og allt annað hráefni í dressinguna. Blandið saman öllu sem fer í salatið og hellið dressingunni yfir. Piprið aðeins með svörtum pipar.
Brauðklattar
300 g hveiti, 300 g semolina eða polenta, 1 1/2 tsk. anís eða fennel-fræ, 1 1/2 tsk. salt, 380 msl volgt vatn, 2 msk. ólífuolía.
Leysið gerið upp í vatninu, blandið olíu saman við. Hellið vökva saman við hveitiblönduna, hrærið saman og hnoðið að lokum. Hnoðið þar til teygjanlegt og mjúkt viðkomu. Ef of blautt, bætið þá við hveiti, ef of þurrt, bætið við vökva. Látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldað stærð sína. Takið deigkúlu, eins og í eina venjulega bollu, og fletjið hana þunnt út. Gerið slíka klatta úr öllu deiginu. Hitið smá olíu á pönnu, hafið pönnuna frekar heita og steikið hvern klatta beggja vegna þar til bakaður í gegn. Setjið alltaf smá olíu á pönnuna fyrir hvern klatta. Smyrjið hvern klatta með smá smjöri og setjið tilbúnu klattana í álpappír sem þið lokið milli þess sem nýr bætist við. Berið klattana fram heita.
[fyrir fjóra]
2 mak. heil kúmínfræ, 1 tsk. sæt paprika, duft, 1/2 tsk. chili, 1 msk. sjávarsalt, 12-16 kótilettur, 40 g brætt smjör.
Hrærið allt kryddið saman í mortéli og myljið aðeins saman. Rétt áður en á að grilla eða steikja kótiletturnar, smyrjið þær með bræddu smjöri og veltið þeim upp úr kryddinu. Grillið eða steikið á pönnu og setjið aðeins inn í heitan ofn til að elda þær í gegn (þarf ekki nema 5-10 mín. í ofni). Berið fram með salati og brauði.
Tómatsalat400 g kirsuberjatómatar, 1/2 rauðlaukur, fínt saxaður, 150 g fetaostur, 2 msk. ferskt eða þurkkað oreganó, 100 g svartar ólífur.
Dressing: 1 hvítlauksrif, 1 tsk. sjávarsalt, 1 1/2 msk. rauðvínsedik, 100 g kirsuberjatómatar, 6 msk. extara virgin ólífuolía, salt og svartur pipar.
Maukið vel saman hvítlauk og salt. Maukið tómatana í matvinnsluvél: Hrærið svo saman hvítlaukinn, tómatmaukið og allt annað hráefni í dressinguna. Blandið saman öllu sem fer í salatið og hellið dressingunni yfir. Piprið aðeins með svörtum pipar.
Brauðklattar300 g hveiti, 300 g semolina eða polenta, 1 1/2 tsk. anís eða fennel-fræ, 1 1/2 tsk. salt, 380 msl volgt vatn, 2 msk. ólífuolía.